Staða

Staða

Lestu textann og svaraðu spurningunum eins vel og þú getur.
Höfundur
Jóhann Gunnar Sigurðsson

Rafbækur

Skáldsögur á íslensku
Ást og auður

Ást og auður er stutt örlagasaga í 11 köflum, oft átakanleg. Segir þar frá stúlkunni Sigríði, bóndanum Gísla sem ann henni hugástum og kaupmanninum Þórarni sem giftist henni. Sagan minnir stundum á Kærleiksheimilið eftir Gest Pálsson. Hún telst þó ekki til raunsæis heldur nýrómantíkur, en skilin eru ekki mjög skörp.

Það sem kannski helst gerir söguna jafn góða og skemmtilega aflestrar og raun ber vitni er einlægnin og ákefðin sem býr að baki. Það er eins og maður finni samkennd höfundar með sögupersónunum og það að hér er skrifað af sárri reynslu, þess sem átt hefur en misst. Þá er ljóðrænn textinn seiðandi og myndmálið oft á tíðum forvitnilegt.

Valmynd

Hljóðbók
Ást og auður

Lengd : 01:35

Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 01:35