Ri-sagnir eru fjórar: gróa, róa, núa og snúa
Þær enda á -ri í þátíð.
Athugið að þó að þátíðin hljómi með (é) hljóði, þá er hún yfirleitt rituð með e í þessum sögnum: gróa / greri, róa / reri, núa / neri, snúa / sneri.
Verkefni 1
Myndaðu fjórar setningar þar sem núþáleg sögn kemur fyrir í þátíð.
Verkefni 2
Hvað merkir orðasambandið að núa einhverjum einhverju um nasir? Myndaðu málsgrein þar sem þetta orðasamband kemur fyrir í þátíð.
(Svar: saka einhvern um e-ð; minna einhvern á einhverja yfirsjón eða afbrot. Hann neri mér því um nasir að ég hefði svindlað á prófinu.)