Höfundur
Oscar Wilde

Rafbækur

Útgáfa

2015
Bækur á ensku

Árið 1888 gaf Oscar Wilde út bókina The Happy Prince and Other Tales, sem eru rómantískar líkinga- eða táknsögur færðar í búning ævintýra. Fáum hefur tekist að skrifa ævintýri af slíku listfengi og þannig að þau henta jafnt börnum og fullorðnum. Sögurnar eru uppfullar af ádeilu, sem truflar þó engan sem ekki er að leita að slíku. Tungutakið í sögunum er einfalt og má segja að það sé mjög nútímanlegt miðað við þann tíma sem sögurnar voru skrifaðar á. Auk titilsögunnar eru í safninu sögurnar The Nightingale and the Rose, The Selfish giant, The Devoted Friend og The Remarkable Rocket. Allt frábærar sögur sem allir hafa gaman af að lesa.