Skildagatíðirnar tvær eru eingöngu til í viðtengingarhætti og þær hafa einungis skilyrðismerkingu (sbr. orðið ‚skildagi‘ = skilyrði).
Skildagatíð er hliðstæð framtíð nema hvað hjálparsögnin munu er í viðtengingarhætti þátíðar:
Jóka mun éta gulrætur (framtíð)
Jóka mundi éta gulrætur (skildagatíð)
Í skildagatíð er miðað við eitthvert skilyrði í framtíðinni með tilliti til einhvers í fortíðinni eða nútíma:
Jóka mundi éta gulrætur væru þær ekki svona trénaðar
Verkefni:
- Hvernig mundir þú útskýra muninn á skildagatíð og framtíð?
- Hvenær notum við skildagatíð?
Svör:
- Skildagatíð hefur sömu hjálparsögn og framtíð (munu) en munurinn er sá að í skildagatíð er hjálparsögnin í viðtengingarhætti þátíðar.
- Í skildagatíð er settur fyrirvari: að eitthvað verði því aðeins gert að tiltekin skilyrði séu uppfyllt.