Persónufornöfn eru dæmi um staðgengla nafnorða. Þau eru í rauninni einungis 5 (ég, þú, hann, hún, það), en hafa ólíkar beygingarmyndir.
Persónufornöfn eru flokkuð eftir persónum:
- 1. persóna – ég
- 2. persóna – þú
- 3. persóna – hann, hún, það
Beygingar persónufornafnanna eru nokkuð óreglulegar og þurfum við að læra þær utanbókar til að kunna þær.
1. persónufornafnið – ég – beygist svona
|
föll |
eintala |
fleirtala |
|
nefnifall |
ég |
við |
|
þolfall |
mig |
okkur |
|
þágufall |
mér |
okkur |
|
eignarfall |
mín |
okkar |
Ath! - 1. persónufornafnið ég er eins í öllum kynjum [kona, karl eða barn geta öll sagt: ég!]
2. persónufornafnið – þú – beygist svona
|
föll |
eintala |
fleirtala |
|
nefnifall |
þú |
þið |
|
þolfall |
þig |
ykkur |
|
þágufall |
þér |
ykkur |
|
eignarfall |
þín |
ykkar |
Ath! - 2. persónufornafnið þú er eins í öllum kynjum (ég get sagt þú við konu, karl og barn!).
3. persónufornöfnin – hann, hún, það – beygjast svona:
kk
|
föll |
eintala |
fleirtala |
|
nefnifall |
hann |
þeir |
|
þolfall |
hann |
þá |
|
þágufall |
honum |
þeim |
|
eignarfall |
hans |
þeirra |
kvk
|
föll |
eintala |
fleirtala |
|
nefnifall |
hún |
þær |
|
þolfall |
hana |
þær |
|
þágufall |
henni |
þeim |
|
eignarfall |
hennar |
þeirra |
hk
|
föll |
eintala |
fleirtala |
|
nefnifall |
það |
þau |
|
þolfall |
það |
þau |
|
þágufall |
því |
þeim |
|
eignarfall |
þess |
þeirra |
Við tökum eftir því að þgf. og ef. ft. eru eins í fornöfnunum þremur (þeim, þeirra).
Verkefni
Finnið öll persónufornöfnin í þessum athyglisverða texta Matthíasar Johannessen:
Ég hef oft haft áhyggjur af tungu okkar og framtíð hennar. Og því meiri sem erlend áhrif hafa verið, einkum í sjónvarpi og öðrum ljósvökum. En ég ætla í bili að staldra við dálítið atvik sem Berlin tíundar í fyrrnefndu samtali og vona það megi ávallt eiga við okkar dýrmæta arf. Hann nefnir sögu sem Jacob Talmon segir í einni bóka sinna og lýsir vel þeirri seiglu sem gróin menning býr yfir. Tveir tékkneskir skólastjórar voru að tala saman snemma á 18. öld. Við erum líklega hinir síðustu í víðri veröld sem tala tékknesku, sögðu þeir hvor við annan. Við blasa endalok hennar. Við munum óhjákvæmilega öll tala þýzku hér í Miðevrópu og sennilega einnig á Balkanskaga. Við erum síðustu móhíkanarnir. Enn tala menn tékknesku og langur vegur frá endalokum hennar.
Úr Samkenndarþjóðfélagið eftir Matthías Johannessen
Í verkefninu hér að ofan eru nokkrar gildrur. Við þurfum t.d. að gæta okkar á orðinu við því að það er ekki alltaf persónufornafn! Þá þurfum við að muna að eignarfall persónufornafna er gjarnan í hlutverki eignarfornafns (sbr. arfur okkar) en er greint sem persónufornafn eftir sem áður.