Spurnarfornöfnin eru fjögur:
- hver
- hvor
- hvaða
- hvílíkur
Hver er notað þegar við erum að vísa til eins af fleiri en tveimur, sbr. Hver vill koma með? Um hvern ertu að tala? Hver beygist á eftirfarandi hátt:
|
Eintala |
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
hver |
hver |
hvert |
|
þolfall |
hvern |
hverja |
hvert |
|
þágufall |
hverjum |
hverri |
hverju |
|
eignarfall |
hvers |
hverrar |
hvers |
|
Fleirtala |
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
hverjir |
hverjar |
hver |
|
þolfall |
hverja |
hverjar |
hver |
|
þágufall |
hverjum |
hverjum |
hverjum |
|
eignarfall |
hverra |
hverra |
hverra |
Spurnarfornafnið hvor er hins vegar notað um annan af tveimur. Hvor þeirra (Gummi eða Siggi) fór með þér í ferðina? Um hvorn þeirra (Jón eða Þór) ertu að tala?
|
Eintala |
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
hvor |
hvor |
hvort |
|
þolfall |
hvorn |
hvora |
hvort |
|
þágufall |
hvorum |
hvorri |
hvoru |
|
eignarfall |
hvors |
hvorrar |
hvors |
|
Fleirtala |
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
hvorir |
hvorar |
hvor |
|
þolfall |
hvora |
hvorar |
hvor |
|
þágufall |
hvorum |
hvorum |
hvorum |
|
eignarfall |
hvorra |
hvorra |
hvorra |
Lítum á þetta dæmi: Hvorir eru sterkari á vellinum, Bandaríkjamenn eða Rússar? Hér notum við spurnarfornafnið hvor í fleirtölu (hvorir) af því að um er að ræða tvo hópa (ekki tvo einstaklinga).
Spurnarfornafnið hvaða notum við í setningum eins og: Með hvaða liði heldurðu? Hvaða menn voru þetta með þér? Hvaða dag áttu afmæli?
Hvaða er eins í öllum föllum og kynjum eintölu og fleirtölu, og þarf því ekki að hafa áhyggjur af beygingunni.
Fjórða spurnarfornafnið, hvílíkur, hefur eiginlega glatað öllum spurnareiginleikum en er einkum notað í upphrópunum: Hvílíkt veður. Hvílíkur leikmaður o.s.frv.
Verkefni
Finndu spurnarfornöfnin
Hvar eru þau núna? Ég veit það ekki en hvaða máli skiptir það þig? Mig langaði bara að vita hvor tvíburanna kæmi á morgun. Hverjar eru líkurnar á að hann nái í hana? Hvorum var þetta að kenna? Hverjum var þetta að kenna? Hvaða asi er þetta? Hverjum er ekki sama? Hvorri treystirðu betur? Hverjum er treystandi þessa dagana? Hvern vildirðu hitta? Það má vera hver sem er, ef út í það er farið. Hverjum þykir sinn fugl fagur. Hvoru ykkar datt þetta í hug og hvar fenguð þið upplýsingarnar?
Hér eru nokkrar gildrur. Orðið hvar í upphafi og lok texta er t.d. atviksorð. Og orðið hver í sambandinu hver sem er og hverjum þykir sinn fugl fagur þarf að greina sem óákveðið fornafn (merkingin er sérhver).