Submitted by jokull.admin on Fimmtud., 01/06/2017 - 06:52
Í dag kynnum við Laxdæla sögu. Í sögunni er að finna eina af áhugaverðari gátum Íslendingasagnanna, sem menn hafa deilt um og leitað svara við án árangurs í gegnum tíðina, en það er túlkun orða Guðrúnar Ósvífursdóttur er Bolli Bollason sonur hennar spyr hana hverjum bænda sinna og ástmanna hún hefði unnað mest, en Guðrún svarar með þeim frægu orðum: ,,Þeim var ég verst er ég unni mest”. Já, nú er bara að lesa sjálfa söguna eða hlusta á hana upplesna og sjá hvort þið getið svarað þeirri gátu.
Types
Lestu
Logo
Button Link
Dagsetning (texti)
Fimmtudagur, 1. júní 2017