Þegar við teljum á einfaldan hátt notum við frumtölur. Þær eru til dæmis:
- einn (1), tveir (2), þrír (3)
- fimmtán (15), sextán (16), sautján (17)
- tuttugu og einn (21) ... þrjátíu og tveir (32)
- hundrað (100), tvö hundruð (200)
- milljón (1000000)
Athugið orðmyndirnar: einir, tvennir, þrennir ...: einir sokkar, þ.e. eitt par.
Verkefni:
- Er eitthvað athugavert við setninguna: „Ég keypti tvenna skó og tvennar peysur“?
- Hvers vegna á að segja: „Ég keypti tvennar buxur“?