Þegar fólki er raðað í sæti eða röð, eða þegar talin er upp röð atvika, notum við raðtölur. Þegar við skrifum raðtölur með tölustöfum setjum við punkt á eftir tölunni til að sýna að um raðtölu sé að ræða.
- fyrsti, annar, þriðji (1., 2., 3.)
- fimmtándi, sextándi, sautjándi (17.).
- tuttugasti og fyrsti (21.), þrítugasti og annar (32.)
- hundraðasti (100.), tvö hundraðasti (200.)
- milljónasti (1000000.)
Þegar talan er orðin mjög há og inniheldur mörg orð eru það venjulega einungis tveir síðustu liðirnir sem eru skráðir/bornir fram sem raðtölur. Dæmi: Sjö þúsund tvö hundruð þrítugasti og níundi (7239.); nítján hundruð nítugasti og fyrsti (1991.).
Verkefni
Skrifið töluorð í stað talnanna.
Ég fékk 1 stig í 1. umferð en 5 stig í 2. umferð.
Í 3. umferð fékk ég svo 20 stig.
Ágúst var í 1. sæti, en Páll bróðir hans náði einungis 3. sæti í sama riðli.
Það er 1 á undan okkur svo við ættum ekki að þurfa að bíða lengi.
Áslaug reyndist vera 1001. viðskiptavinurinn í verslun Baldurs og fékk fyrir það úttekt upp á 156000 krónur.
Sú sem var 1000. viðskiptavinurinn fékk hins vegar úttekt fyrir 500000 krónur auk þess sem hún fékk ferð fyrir 2 til Færeyja.