11. Hólar í Hjaltadal

Hólar í Hjaltadal voru biskupssetur um margra alda skeið. Um miðja 11. öld bjó þar maður að nafni Oxi Hjaltason. Hann lét gera mikla kirkju á staðnum. Um 1100 var jörðin í eigu prestsins Illuga Hjaltasonar. Þegar ákveðið var að setja biskupsstól á Norðurlandi gaf Illugi jörð sína til biskupsseturs. Þá hafði biskup verið í Skálholti frá árinu 1056. Nú fengu Norðlendingar sinn eigin biskup; það var árið 1106 þegar Jón Ögmundsson var vígður til þessa virðulega embættis. Eftir það og allt fram til ársins 1798 voru biskupar tveir á Íslandi, annar í Skálholti en hinn á Hólum.

Jón biskup Ögmundsson (d. 1121) var afar áhugasamur um eflingu kristni í landinu. Hann stofnaði skóla á Hólum og fékk góða kennara til liðs við sig. Og hann lagði drög að stofnun fyrsta klaustursins á Íslandi, Þingeyraklausturs í Húnavatnsþingi (vígt 1133).

Jón biskup ber einnig ábyrgð á því að daganöfnunum var breytt: Hann vildi ekki láta daga heita eftir heiðnum goðum (Týsdagur, Óðinsdagur, Þórsdagur, Freysdagur). Þannig gekk hann lengra en t.d. Danir og Englendingar sem enn halda í gömlu daganöfnin sín (tysdag, Thursday o.s.frv.).

Jón Arason var síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi. Hann lét flytja fyrstu prentsmiðju til landsins kringum 1530. Jón var gott skáld og umsvifamikill leiðtogi. En ekki gat hann komið í veg fyrir innleiðingu lúterstrúar sem konungsvaldið fyrirskipaði. Jón var hálshöggvinn í Skálholti án dóms og laga árið 1550 ásamt sonum sínum tveimur.

Í lúterskum sið er Guðbrandur Þorláksson sennilega merkasti Hólabiskupinn. Hann sat á biskupsstóli í 56 ár (d. 1627), lengur en nokkur annar íslenskur biskup. Hann treysti lúterskuna mjög í sessi, m.a. með útgáfu sálma. Guðbrandur var óvenjulega fjölhæfur. Hann var bæði stærðfræðingur og stjörnufræðingur; hann gerði m.a. uppdrátt af Íslandi, fyrstur Íslendinga. Hann var afar laghentur og skar út og smíðaði. En lengst verður hans líklega minnst fyrir að gefa út íslenska biblíu, svokallaða Guðbrandsbiblíu, árið 1584, sem hann þýddi sjálfur að hluta. Þetta var gríðarlegt afrek, og því hefur verið haldið fram að biblíuútgáfa hans hafi átt drjúgan þátt í að íslensk tunga hélt velli en varð ekki dönskunni að bráð.  

Dómkirkjan á Hólum, sem nú stendur, var vígð árið 1763. Hún var reist með miklum tilkostnaði og stórhug, og til að afla fjár til framkvæmdarinnar var lagður skattur á allar kirkjur í Danmörku og Noregi auk almennrar fjársöfnunar í þessum löndum. Frægur danskur arkitekt var fenginn til að teikna kirkjuna sem er eitt elsta steinhús á Íslandi. Í kirkjunni er undurfalleg altaristafla, sennilega frá Niðurlöndum (snemma á 16. öld), gefin þáverandi Hóladómkirkju af Jóni biskupi Arasyni.

Turninn við hlið Hólakirkju var vígður árið 1950 til minningar um Jón biskup Arason.

Á Hólum var stofnaður búnaðarskóli árið 1882 og hefur hann starfað fram á þennan dag, nú undir nafninu Háskólinn á Hólum.

 
Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden