Spiro Agnew var varaforseti Bandaríkjanna á árunum 1969–1973, í forsetatíð republikanans Richards Nixon.
Agnew var lögfræðingur af grískum ættum. Hann var ofursti í heimsstyrjöldinni síðari og einnig í Kóreustríðinu árið 1950. Áður en hann varð varaforseti hafði hann verið ríkisstjóri í Maryland-fylki. Frami Agnews var snöggur: Nixon valdi hann sem varaforsetaefni í forsetakosningunum árið 1968 og aftur 1972.
Framtíð þeirra beggja virtist björt eftir seinni kosningasigurinn. En blikur fóru að sjást á lofti, og áður en seinna kjörtímabili þeirra lauk höfðu þeir báðir orðið að segja af sér, fyrst Agnew í kjölfar fjársvikamála, og síðan sjálfur Nixon forseti í kjölfar Watergate-hneykslisins þar sem í ljós kom að kosningastjórar Nixons höfðu brotist inn á kosningaskrifstofu mótframbjóðandans, McGoverns.
Agnew var ákærður fyrir margs konar afglöp sem hann framdi meðan hann var enn ríkisstjóri, m.a. fjárkúgun, skattsvik, mútur og samsæri. Mútuféð sem hann hafði þegið nam um 100 þúsund Bandaríkjadollurum, sumt af því jafnvel eftir að hann varð varaforseti. Þann 10. október 1973 var honum boðið að sleppa við ákæru fyrir skattsvik upp á 30 þúsund dollara frá árinu 1967 ef hann segði af sér sem varaforseti. Hann átti engra annarra kosta völ.
Það munaði semsagt ekki miklu að Agnew yrði forseti Bandaríkjanna. En Gerald Ford hafði nýlega tekið við varaforestaembættinu þegar Nixon varð að víkja og því var það Ford sem fékk forsetastólinn á silfurfati haustið 1973. Hálfu ári áður hafði Agnew samkvæmt skoðanakönnun verið talinn líklegastur til að verða næsti frambjóðandi republikana; hann hafði forskot á kvikmyndaleikarann Ronald Regan, sem sóttist fast eftir tilnefningu. Atburðarásin varð svo þessi: Gerald Ford var tilnefndur en féll í kosningunum 1976 fyrir demokratanum Jimmy Carter. En republikaninn Ronald Regan sigraði síðan Carter í kosningunum 1980.
Á varaforsetaferli sínum einangraðist Agnew smátt og smátt; Nixon hélt honum utan við allar ákvarðanir og hætti nánast að tala við hann. En hann notaði Agnew til að verja óvinsælar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, einkum í Vietnamstríðinu. Þá notaði Agnew orðin „Un-American“ um landa sína sem gagnrýndu stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Vietnam. Ræður hans þóttu skringilegar og því var hann eftirsóttur ræðumaður; og hann naut þess að umgangast „fræga fólkið“; meðal góðvina hans var t.d. stórstjarnan Frank Sinatra.
Um Spiro Agnew hefur verið sagt (og þá var gripið til myndmáls): „Enginn maður hefur komið á markaðinn með verri vöru, og enginn maður hefur fengið meira borgað fyrir það sem hann bauð til sölu.“
| Fjöldi spurninga: | 9 |
| Fjöldi tilrauna leyfðar: | Otakmarkad |
| Opið: | Alltaf |
| Til að ná prófinu: | 50 % |
| Má fara tillbaka: | Forbidden |