12. Frank Sinatra (1915–1998)

Frank Sinatra var einn athyglisverðasti og mest umtalaði Bandaríkjamaður 20. aldar. Hann var af ítölskum ættum og ólst upp í fátækt. Hann segir sjálfur að sér hafi verið strítt í æsku, hann hafi staðið í slagsmálum við félagana sem stöðugt stríddu honum af ítölskum uppruna hans og einnig á því hvað hann var lítill. Hann ákvað 13 ára gamall að verða söngvari, og fyrirmyndin var Bing Crosby! Félagarnir hlógu að honum. En hann gerði það sem hann hafði sagt; það kostaði blóð, svita og tár og 13 ára baráttu. Hann var orðinn 26 ára þegar hann loksins sló í gegn á tónleikum í New York þar sem hann fékk að koma fram sem einsöngvari á tónleikum Benny Goodman.

En þrátt fyrir mikinn frama var Frank Sinatra alla tíð afar umdeildur. Hann þótti hrokafullur og átti það til að húðskamma blaðamenn og jafnvel brjóta myndavélar ljósmyndaranna. Svo var annað ekki betra: Frank var sagður vera í nánu sambandi við mafíuna amerísku. Víst er að allt gekk upp í fjármálum hans og hann átti spilavíti í Las Vegas sem blómstraði. En aldrei sannaðist neitt á hann.

Frank gerðist vinur demókratans Johns F. Kennedy í kosningabaráttunni til forseta. Frank skipulagði veisluhöld í sambandi við embættistökuna, og skömmu síðar bauð Frank honum til sveitaseturs síns. Allt var klappað og klárt, og Frank búinn að gera lendingaraðstöðu fyrir þyrlu forsetans. En Kennedy hætti skyndiega við ferðina. Frank fyrirgaf þetta aldrei og sneri sér að repúbilkönum sem hann studdi eftir þetta með ráðum og dáð. Talið er að hann hafi átt hvað mestan þátt í að Richard Nixon náði forsetakjöri árið 1968. Hann studdi og vel við bakið á Ronald Regan þegar hann sóttist eftir að verða ríkisstjóri í Californiu og einnig í forsetakosningunum 1980.

En ástæðan fyrir því að Kennedy sleit vinskap við Frank Sinatra voru upplýsingar leyniþjónustunnar FBI um tengsl Sinatra við mafíuna. Í ljós hafði komið að ástkona Sinatra á þessum tíma var einnig ástkona mafíuforingjans Sam Giancanna. Og það sem verra var: hún var líka ástkona Kennedys sjálfs! Leyniþjónustumennirnir skipuðu forsetanum að hætta öllu sambandi bæði við konuna og Sinatra!

Sinatra var fjórkvæntur. Með fyrstu konunni, Nacy Barbato átti hann þrjú börn, m.a. söngkonuna Nancy Sinatra. Þau skildu eftir 12 ára sambúð árið 1951. Þá gekk hann að eiga hina heimsfrægu leikkonu Ava Garnder; það hjónaband entist í sex ár og haft var eftir Frank að samband þeirra hefði einkennst af rifrildi. Þriðja eiginkonan, sem hann kvæntist árið 1966, var leikkonan Mia Farrow, sem var um 30 árum yngri en hann, og olli hjónaband þeirra mikill hneykslun af þeirri ástæðu. Sambandið entist aðeins í tvö ár. Síðasta konan var Barbara Marx.

En lengst verður Sinatra auðvitað minnst fyrir sönginn. Hann hætti að synga opinberlega árið 1971, þá 55 ára, en varð að láta undan þrýstingi fjórum árum síðar að byrja á ný. Þá hélt hann tíu tónleka í London fyrir troðfullu húsi. Af þeim fjölmörgu frægu lögum sem Sinatra söng má nefna „Strangers in the Night“.

Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden