Í október 2015 sór Justin Trudeau embættiseið sem forsætisráðherra Kanada, eftir kosningasigur Frjálslynda flokksins. Íhaldsflokkurinn hafði þá farið með völd í landinu í níu ár. Justin Trudeau hefur strax vakið athygli fyrir afdráttarlausar skoðanir, m.a. í alþjóðamálum, þar sem hann hefur lýst sig andvígan hernaðarbrölti Vesturveldanna í Mið-Austurlöndum.
Justin Trudeau er elstur þriggja sona Pierre Trudeau sem var forsætisráðherra Kandada í 15 ár, á árabilinu 1968 til 1984. Pierre Trudeau var afar litríkur persónuleiki, bæði í opinberu lífi og einkalífi. Hann var fæddur í Ouebec-fylki (þar sem franska er töluð) og var af frönskum ættum í föðurætt, en móðurættin var skosk. Hann lærði lögfræði og stundaði m.a. nám við Sorbonneháskólann í París. Hann varð ungur prófessor í Montreal í Quebec. En árið 1965 var hann kosinn á þing og aðeins þremur árum síðar var hann orðinn forsætisráðherra, þá tæplega fimmtugur, ókvæntur en bendlaður við margar frægar konur, m.a. leikkonuna Barböru Streisand.
Árið 1971 kvæntist Trudeau rúmlega tvítugri konu, Margaret Sinclair, og innan örfárra ára höfðu þau eignast þrjá syni. Yngsti sonurinn, Michael, fórst í snjóflóði árið 1998, 23 ára. Hann var ævintýramaður eins og faðirinn og hafði tekið sér ársfrí frá háskólanámi til að vinna í björgunarsveit sem sérhæfði sig í björgun úr snjóflóðum.
Hjónaband Trudeaus og Margret stóð ekki lengi. Hún virtist ekki hamingjusöm og talaði um það í fjölmiðlum að hún vildi að maðurinn sinn hætti í stjórnmálum. Hún fór að sjást á skemmtistöðum í fylgd með frægum mönnum, m.a. þeim Mick Jagger og Keith Richard úr hjómsveitinni Rolling Stones. Skilnaður varð ekki umflúinn. Það vakti m.a. athygli að Trudeau fékk að halda sonunum og þeir ólust upp hjá honum. Margaret reyndi fyrir sér sem ljósmyndari í New York en átti þar erfitt uppdráttar.
Af Trudeau er það að segja að sem forsætisráðherra kom hann á miklum breytingum í Kanada. Hann tók upp sjálfstæða stefnu gagnvart Bandaríkjunum; til dæmis skaut hann skjólshúsi yfir fjölmarga Bandaríkjamenn sem ekki vildu ganga í herinn og berjast í hinu mannskæða stríði í Víetnam. Trudeau afnam dauðarefsingu í Kanada og jók réttindi samkynhneigðra. Hann kom á metrakerfi í landinu gegn vilja fjölmargra landa sinna sem vanir voru að mæla vegalengdir í mílum og bensín í gallonum. Mikilvægasta framlag Trudeaus er þó sennilega það að honum tókst að auka mjög réttindi frönskumælandi Kanadamanna, m.a. með því að gera þá kröfu til allra embættismanna að þeir kynnu frönsku auk þess sem hann fjölgaði frönskumælandi embættismönnum. Hann gerði frönsku jafnréttháa ensku í landinu, t.d. með því að lögbjóða að götuskilti, leiðbeiningar á umbúðum o.s.frv. væru á báðum tungumálunum.
Trudeau var umdeildur – elskaður og hataður, t.d. fyrir að segja bændum að þeir væru sífellt kvartandi, og atvinnulsausum verkamönnum að þeir væru latir. En hann var afreksmaður, og Kanadamenn kusu hann mann 20. aldarinnar í Kanada.
| Fjöldi spurninga: | 8 |
| Fjöldi tilrauna leyfðar: | Otakmarkad |
| Opið: | Alltaf |
| Til að ná prófinu: | 50 % |
| Má fara tillbaka: | Forbidden |