Elly Vilhjálms hét réttu nafni Henny Eldey Vilhjálmsdóttir; hún fæddist í Höfnum árið 1935. Eldeyjarnafnið tengist sennilega þeirri staðreynd að hin þverhnípta klettaeyja Eldey er ekki langt undan ströndinni þar sem litla stúlkan fæddist. Nafnið Henny virðist ekki hafa verið notað.
Í ævisögu Ellyar sem út kom 2012 er rifjað upp að fólki hafi þótt nafnið Eldey sérkennilegt. Og þegar Elly var í skóla á Laugarvatni á unglingsárum birtist eitt sinn frétt í Morgunblaðinu sem hafði sín áhrif. Í blaðinu stóð að „hrunið hefði úr Eldey að austanverðu“. Allir skólafélagarnir töluðu nú um hrunið úr Eldey. Þetta varð til þess að vinkonur Ellyar héldu fund með henni – og nafninu var breytt í Elly.
Og nafnið styttist enn í munni manna: Elly Vilhjálms. Undir því nafni átti hún eftir að verða ein allra ástsælasta dægurlagasöngkona Íslendinga.
Elly byrjaði að syngja opinberlega um tvítugt, en nokkru fyrr hafði Kristján Kristjánsson, stjórnandi hins vinsæla KK-sextetts „uppgötvað“ hana. Tuttugu og tveggja ára gekk hún svo til liðs við hinn vinsæla KK-sextett sem spilaði fimm kvöld í viku á Þórscafé í Reykjavík. Í blaðaviðtali spurði blaðamaðurinn: „Mikil aðsókn?“ „Já mjög mikil,“ svaraði Elly, „yngra fólk aðallega, en þó skiptist það eftir dögum, að hingað kemur fólk á öllum aldri.“ Blaðamaður: „Gestir ágengir?“ „Nei, alls ekki. Það kemur fyrir að þeir bjóða manni til sín að borði, eða út, en það er svo algengt hér eins og annarsstaðar, að maður tekur lítið eftir því.“ Í viðtalinu kemur fram að Elly hafi mikinn áhuga á suðuramerískri tónlist og að hún sæki námskeið í spænsku. Hún átti eftir að verða mjög góð í spænsku, sagt var í minningargrein um Elly að hún hefði talað spænsku eins og innfæddur Spánverji.
Lögin sem Elly söng urðu mörg hver þjóðareign, lög eins og „Ég vil fara upp í sveit“. Þar kemur m.a. fyrir setningin: „Og í jeppa oft vil skreppa“, og líka þessi: „Því ég veit að allir elska kaupakonur.“ Sveitasælan í algleymingi á sjötta áratungum þó að fólksstraumurinn lægi reyndar til Reykjavíkur! Menn elskuðu þetta lag og þennan texta. Þá má nefna lagið „Vegir liggja til allra átta,“ titillag kvikmyndarinnar „79 af stöðinni“ sem sýnd var við miklar vinsældir um 1960. Seinna söng Elly m.a. nokkur lög inn á plötur með Vilhjálmi bróður sínum; hann var 10 árum yngri en hún, og fórst í bílslysi í Luxemburg aðeins 35 ára.
Elly var þrígift. Þriðji eiginmaður hennar var hinn vinsæli danshljómsveitarstjóri Svavar Gests. Með hljómsveit hans söng Elly um árabil. Svavar var einnig þekktur útvarpsmaður og stjórnaði fjölmörgum skemmtiþáttum í útvarpinu áður en íslenskt sjónvarp kom til sögunnar. Seinna varð Svavar einn umsvifamesti hljómplötuúgefandi landsins og gaf meðal annars út margar hljómplötur með Elly. Af frægum lögum Ellyar frá þeim árum má nefna „Heyr mína bæn“, „Lítill fugl“ og „Sveitin milli sanda“.
Elly eignaðist fjögur börn, m.a. Hólmfríði Ástu sem fékk ung sjúkdóminn MS og lést árið 2004.
| Fjöldi spurninga: | 8 |
| Fjöldi tilrauna leyfðar: | Otakmarkad |
| Opið: | Alltaf |
| Til að ná prófinu: | 50 % |
| Má fara tillbaka: | Forbidden |