4. Samtengingar

Samtengingar tengja einstök orð eða setningar.

 

Dæmi:

Maður og kona (og tengir tvö nafnorð)

Hann sagði Jón væri kominn ( tengir tvær setningar)

Gunna spurði hvort einkunnin væri góð ( tengir tvær setningar)

Strákar eða stelpur (eða tengir tvö nafnorð)

Stelpan er stór og sterk (og tengir tvö lýsingarorð)

Drengurinn fer af því hann er búinn ( tengir tvær setningar)

Jón fór að borða en Pétur skrapp í sund (en tengir tvær setningar)

 

 

Verkefni

Finnið allar samtengingar í þessum texta:

Sámur gengur heim til búðar sinnar, og var þeim frændum þungt í skapi og uggðu, að þeirra mál mundu svo niður falla, að þeir mundu ekki fyrir hafa nema skömm og svívirðing; og svo mikla áhyggju hafa þeir frændur, að þeir njóta hvorki svefns né matar, því að allir höfðingjarnir skárust undan liðsinni við þá frændur, jafnvel þeir, sem þeir væntu, að þeim mundi lið veita.

(Hrafnkels saga, 8. kafli)