Traust skilgreining á setningu hefur lengi vafist fyrir fræðimönnum. Í kennslubókum hljóðar hún oft svona:
Setning er samband orða sem umsögn er í, eða einungis ein umsögn.
Verkefni
1. Skilgreinið setningu.
2. Semjið setningar með þremur, fjórum, fimm, sex og sjö orðum.
3. a) Hve margar málsgreinar eru í efnisgreininni fyrir neðan?
b) Hve margar setningar eru í málsgreinunum?
Stóð þá eigi lengur á samþykki stúlkunnar og giftist hún prestinum. Búnaðist þeim hjónum vel því að prestskonan reyndist dugleg og hagsýn og virtist hverjum manni vel.
4. a) Hve margar málsgreinar eru í efnisgreininni fyrir neðan?
b) Hve margar setningar eru í málsgreinunum?
Drengurinn sem kom hingað í gær fer þegar hann er búinn að ljúka erindinu. „Finnst þér ekki rétt að fylgja honum?“ sagði afi. „Þið getið þá hjálpast að ef eitthvað bjátar á.“
5. Hve margar setningar eru í hverri málsgrein hér fyrir neðan?
- Maðurinn söng.
- Maðurinn hló og hundurinn gelti.
- Konan spurði hvort Sigga væri farin.
- Jón telur að Nonni borði skyr á morgnana.
- Hún sagði að Jón hefði komið í bæinn þegar veðrið gekk niður.
- Að maðurinn væri farinn fannst Stínu ólíklegt.