6. Faðir Ingimundar gamla drepur Jökul jarlsson og kvænist systur hans!

Margar Íslendingasögur hefjast á frásögnum af ættfólki landnámsmanna áður en þeir fóru frá Noregi. Við kynnumst til dæmis ungum manni, Þorsteini Þorkelssyni sem býr í Raumsdal á vesturströnd Noregs. Þannig stóð á að margir nágrannar Þorsteins höfðu horfið þegar þeir ætluðu að ferðast um óbyggðir á leið til byggða í austri, t.d. Guðbrandsdals  eða jafnvel Gautlands (í núverandi Svíþjóð).  

Faðir Þorsteins ásakaði hann um leti og ómennsku. Þorsteinn tók þetta nærri sér og hélt einn af stað í austurátt og rakst á mikinn skála inni í þéttum skógi. Skálinn var auður en vel búinn og snyrtilegur. Innan skamms kom gríðarstór maður inn í skálann og Þorsteinn faldi sig en fylgdist með öllu háttalagi skálabúans sem fékk sér góðan mat og drakk öl af bikar; hvítur dúkur var á borði. Skálabúinn fann samt á sér að einhver hafði komið; hann fór að  tala við sjálfan sig um illskuverk sín, rán og manndráp. Síðan lagðist hann til svefns með sverð við hlið sér. Þorsteinn læddist að honum, náði sverðinu og rak manninn í gegn. Sá náði þá taki á Þorsteini og hafði líf hans í hendi sér. Þorsteinn biður sér ekki griða. Skálabúinn ákveður að drepa Þorstein ekki en fer að segja honum frá lífi sínu.

Skálabúinn heitir Jökull og er jarlssonur af Gautlandi en gerðist stigamaður og rændi og drap saklaust fólk. Hann virðist iðrast gerða sinna og biður Þorstein að fara til Gautlands og segja jarlshjónunum hvernig komið sé. Ekki nóg með það: hann segir Þorsteini að hann eigi að biðja jarlsdótturinnar, Þórdísar. Jafnframt fer hann fram á að einhver afkomandi þeirra beri nafn sitt, þ.e. nafnið Jökull.

Þetta fer eins og Jökull kveður á um: Þorsteinn fer til Gautlands og sýnir með því mikinn kjark. En jarlshjónin, Ingimundur og Vigdís, sætta sig við orðinn hlut og gefa Þorsteini Þórdísi dóttur sína. Með öðrum orðum: Þórdís giftist manni sem drap bróður hennar!

Þau Þorsteinn og Þórdís eignuðust son sem skírður var Ingimundur. Þau dvöldu ekki lengi í Gautlandi, heldur héldu til Noregs og þar tók Þorsteinn við búi föður síns en var í víkingu á sumrin. Ingimundur sonur þeirra hjónanna var efnispiltur, var í víkingu eins og faðirinn og studdi meðal annars Harald hárfaga til valda í Noregi í úrslitaorustu hans í Hafursfirði. Ingimundur ætlaði sér alltaf að setjast að á ættarsetrinu í Noregi, enda var þar allt í blóma.

En örlögin tóku í taumana: Seiðkona ein lappnesk spáði því að Ingimundur ætti eftir að setjast að á Íslandi. Til sannindamerkis sagði hún honum að lítið Freyslíkneski mundi hverfa úr pússi hans og bætti því við að það myndi finnast á þeim stað þar sem hann ætti eftir að setjast að. Ingimundur reiddist seiðkonunni, en eftir að hafa leitað til þriggja lappa sannfærðist hann um að örlögin hefðu ætlað honum að flytjast til Íslands. Hann gerði það og settist að á Hofi í Vatnsdal þar sem hann hafði einmitt fundið Frey! Einn sona hans hlaut nafnið Jökull.

 
Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden