Sagnorð beygjast í háttum. Hættirnir skiptast í tvo flokka:
persónuhætti og fallhætti.
Persónuhættirnir eru þrír:
- Framsöguháttur (fsh.)
- Viðtengingarháttur (vth.)
- Boðháttur (bh.)
Fallhættirnir eru einnig þrír:
- Nafnháttur (nh.)
- lýsingarháttur nútíðar (lh.nt.)
- lýsingarháttur þátíðar (lh.þt.)
Verkefni:
1. Hverjir eru persónuhættirnir?
2. Hverjir eru fallhættirnir?
Til glöggvunar:
Sögn í persónuhætti er alltaf í einhverri persónu og tölu: Ég kem (1.p.et.fsh.)/ þótt við komum (1.p.ft.vth.)/ komdu (2.p.et.bh.)/ vík (2.p.et.bh.) brott, Satan.)
En sögn í fallhætti tengist ekki persónu eða tölu: Ég er að koma/ þeir eru að koma/ ég hef talað/ þeir hafa talað (sögnin í fallhættinum, hvort sem um era ð ræða nafnhátt eða lýsingarhátt, breytist ekki þó breytt sé um persónu eða tölu).