7. Hvern elskaði Guðrún mest?

 

Í Laxdæla sögu (Laxdælu) er meðal annars sagt frá Guðrúnu Ósvífursdóttur. Hún var uppi seint á 10. öld og á fyrri hluta þeirrar elleftu.

Guðrún ólst upp á Laugum í Sælingsdal og þótti vitrust og glæsilegust kvenna sem þá voru á Íslandi. Hana dreymdi á æskuárum drauma sem hún bað frænda sinn, vitringinn Gest Oddleifsson í Haga á Barðaströnd, að ráða. Draumana réð Gestur þannig að hún mundi eignast fjóra menn en standa ein að lokum.

Aðeins 15 ára var Guðrún gefin manni sem Þorvaldur hét og var hún ekki spurð álits. Þau skildu fljótlega. Þá hafði hún þegar verið búin að kynnast kvæntum manni, Þórði Ingunnarsyni; hann skildi við konu sína til að geta gengið að eiga Guðrúnu. Sú aðferð sem hann beitti að ráði Guðrúnar var að krefjast skilnaðar af því að konan hans klæddist „setgeirabrókum“ (setgeiri = klofbót) eins og karlmaður. Guðrún eingaðist son með Þórði. En hjónabandið var skammvinnt því Þórður drukknaði. Guðrún fór þá til foreldra sinna á ný, enda kornung enn.

Að Sælingsdalslaug kom oft ungur og glæsilegur maður, Kjartan Ólafsson frá Hjarðarholti, ásamt Bolla frænda sínum og uppeldisbróður. En að því kom að Kjartan vildi halda utan eins og títt var þá um höfðingjasyni. Guðrún vildi fara með honum; hann vildi það ekki en bað hana að bíða sín í þrjú ár. Þau skildu ósátt.

Þeir Kjartan og Bolli fóru báðir utan, og dvöldu löngum við hirð Ólafs konungs Tryggvasonar í Noregi. Að liðnum þremur árum hélt Bolli heim en Ólafur konungur hélt Kjartani hjá sér sem gísl ásamt fleiri íslenskum höfðingjasonum því að hann vildi þvinga Íslendinga til að taka kristna trú. Kjartan bað Bolla fyrir kveðju heim, en Bolli skilaði henni ekki, heldur sannfærði Guðrúnu um að Kjartan væri orðinn henni afhuga. Að lokum samþykkti Guðrún að giftast Bolla.

Kjartan kom heim sumarið eftir og gekk fljótlega að eiga aðra konu. Nú upphófust deilur milli þessa fólks og að endingu hvatti Guðrún bræður sína og Bolla til að drepa Kjartan. Bolli var tregur til en að lokum var það hann sem veitti Kjartani fóstbróður sínum banasár. Bræður Kjartans fóru skömmu síðar að Bolla og drápu hann eftir að móðir þeirra hafði eggjað þá til verksins.

Guðrún giftist nú höfðingjanum Þorkeli Eyjólfssyni og bjuggu þau á Helgafelli á Snæfellsnesi. Þorkell drukknaði á Breiðafirði.

Þegar Guðrún var komin á efri ár spurði Bolli sonur hennar hana að því hvern manna sinna hún hefði elskað mest. Hún færðist undan en sagði að lokum: „Þeim var ég verst er ég unni mest.“ Sumir halda því fram að þetta hafi verið Kjartan.

Guðrún gerðist einsetukona, kannski sú fyrsta á Íslandi.

Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden