Sumir staðir á Íslandi eru flestum Íslendingum mjög kærir vegna þess að þar hafa gerst atburðir sem hafa mótað sögu þjóðarinnar. Skálholt er einn þessara staða. Þar bjó t.d. sá maður sem hafði hvað mest áhrif á að kristni var lögtekin á Íslandi árið 1000. Þetta var Gissur hvíti Teitsson. Hann var sonarsonur Ketilbjarnar gamla landnámsmanns á Mosfelli í Grímsnesi sem vildi ekki láta ættingja sína njóta auðæfa sinna. Hann tók í elli sinni allt silfur sem hann átti og lét þræla bera það upp í Mosfellið og grafa. Síðan drap hann þrælana, og silfrið hefur aldrei fundist.
Afkomendur Ketilbjarnar voru öðruvísi þenkjandi. Gissur hvíti var t.d. friðarins maður. Hann sendi son sinn Ísleif til mennta í Þýskalandi og varð Ísleifur fyrsti biskup á Íslandi og sat í Skálholti. Þegar hann hélt utan til biskupsvígslu árið 1056 flutti hann með sér hvítabjörn sem kominn var frá Grænlandi og gaf Heinreki keisara í þýskalandi. Ísleifur rak skóla í Skálholti og kenndi m.a. Jóni Ögmundssyni sem síðar varð fyrsti biskup á Hólum í Hjaltadal (árið 1106). Jón biskup sagði um þennan læriföður sinn: „Ísleifur fóstri minn var manna vænstur, manna hagastur, allra manna bestur ... Þá kemur mér hann í hug, er ég heyri góðs manns getið.“
Sonur Ísleifs Gissuarsonar var Gissur Ísleifsson. Hann er einhver glæsilegasti höfðingi sem Ísland hefur alið. Ari fróði segir um Gissur að hann hafi verið „ástsælli“ en nokkur maður sem hann þekkti. Það var Gissur Ísleifsson sem kom á tíundarlögum árið 1097 og það hefur verið mikið afrek. Hann fékk menn til að telja fram og virða allar eigur sínar og borga svo af þeim skatt. Þannig var hægt að fjármagna ekki aðeins biskupsstólinn, heldur einnig kirkjurnar og prestsembættin; auk þess fór fjórðungur tíundarteknanna í að styðja við fátæka. Þannig var komið á velferðarkerfi á Íslandi. Gissur gaf jörð sína Skálholt undir biskupssetur.
Þegar minnst er á Skálholt verður okkur líka hugsað til síðasta kaþólska biskupsins á Íslandi, Jóns Arasonar á Hólum í Hjaltadal: Hann var hálshöggvinn í Skálholti árið 1550. Þar með var framgangur lúterskunnar tryggður á Íslandi. Nú var klaustrunum lokað með þeirri þjónustu sem þeim fylgdu og allar eigur kirkjunnar urðu nú konungseign.
Jón Arason var ekki eini biskupinn sem tekinn var með valdi í Skálholti og sviptur lífi. Íslenskir bændur réðust að Jóni Gerrekssyni árið 1433, stungu honum í poka og drekktu honum í Brúará.
Þegar hugsað er til Skálholts má ekki gleyma tveimur óhamingjusömum konum sem tengjast staðnum órjúfandi böndum. Það er Ragnheiður dóttir Brynjólfs biskups (sem Gunnar Þórðarson samdi óperu um) og Snæfríður Íslandssól (hið ljósa man) sem Halldór Laxness skapaði út frá sannsögulegri persónu, ástkonu handritasafnarans Árna Magnússonar sem missti fjölmörg ómetanleg handrit og skjöl í brunanum mikla í Kaupmannahöfn árið 1728.
| Fjöldi spurninga: | 8 |
| Fjöldi tilrauna leyfðar: | Otakmarkad |
| Opið: | Alltaf |
| Til að ná prófinu: | 50 % |
| Má fara tillbaka: | Forbidden |