8. Hljómar frá Keflavík

https://i.tonlist.is/0/2/634687927341300000/1867.jpg

Það eru einhverjir töfrar yfir nafninu Hljómar, hljómsveitinni frá Keflavík sem sló í gegn veturinn 1963–1964 og var um árabil langvinsælasta hljómsveit landsins. Hvernig byrjaði þetta ævintýri?

Eggert V. Kristinsson var einn af upphafsmönnum hljómsveitarinnar og hann skrifaði grein í Morgunblaðið á 40 ára afmæli hennar. Þar kemur m.a. fram að í Keflavík hafi á árunum kringum 1960 verið starfrækt vinsæl hljómsveit undir stjórn Guðmundar Ingólfssonar. Guðmundur ákvað að hætta vorið 1963 og leysa hljómsveitina upp. Þá tóku þeir Eggert og Gunnar Þórðarson (þá 18 ára) sig saman sem báðir höfðu spilað hjá Guðmundi Ingólfssyni og stofnuðu nýja hljómsveit sem skyldi verða tilbúin til starfa um haustið. Þeir höfðu verið mikið í rokkinu en ætluðu að breyta um takt og fara meira yfir í suður-ameríska tónlist („bossa nova“). En sú breyting kom reyndar aldrei til framkvæmda því að um sumarið og haustið kynntust strákarnir tónlist Bítlanna sem voru einmitt um það bil að verða frægir þetta sumar.

Þeir Gunnar Þórðarson (rytmagítar) og Eggert (trommur) fengu í lið með sér Erling Björnsson (gítar) og einnig söngvarann Einar Júlíusson sem hafði sungið með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar. En það vantaði bassaleikara. Gunnar stakk upp á vini sínum Rúnari Júlíussyni (1945–2008) sem var á þeim tíma þekktur sem einn efnilegasti knattspyrnumaður landsins í liði Keflavíkur. Gunnar sagðist geta kennt honum á bassann!

Bandið skyldi heita Hljómar. Þeir réðu sig til að spila á hverjum laugardegi í Krossinum í Njarðvík. Kaupið var þokkalegt, þúsund krónur á viku en það jafngilti kaupi afgreiðslumanna í verslun. Á fyrsta ballið mættu 400 unglingar. Þeir voru spenntir að vita hvað þessir ungu strákar mundu geta. Sagt er að Rúnar Júl. hafi  snúið bakinu í áheyrendur allan tímann; skýringin var sú að hann var með bassanótur frá Gunnari á blaði sem lá á borði fyrir aftan hann. Seinna átti Rúnar eftir að verða sá sem tryllti í gestunum með eggjandi sviðsframkomu. Böllin sem Hljómar héldu á næstu árum í Glaumbæ í Reykjavík voru „heitustu“ samkomur á landinu að sögn viðstaddra!

Syrpa sem Hljómar spiluðu á fyrsta ballinu á Krossinum í Njarðvík með sex lögum af fyrstu Bítlaplötunni „Love Me Do“ gerði mesta lukku. Það varð til þess að þeir tóku öll lögin á plötunni inn í prógrammið enda voru þeir oft kallaðir „hinir íslensku Bítlar“.

En þeir félagarnir sömdu einnig sín eigin lög sem urðu gríðarlega vinsæl. Hver man ekki eftir „Bláu augun þín“ og „Fyrsti kossinn“ eftir Gunnar Þórðarson?

Mannaskipti urðu í hljómsveitinni en kletturinn var Gunnar Þórðarson. Ferill Gunnars í tónlistarheiminum er ævintýri líkastur: stráksins sem gekk út úr blikksmiðjunni til að sinna kalli hjartans. Þegar hann var kominn nálægt sjötugu var frumflutt eftir hann í Hörpu óperan Ragnheiður sem fékk einróma lof.

Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden