9. Maria Callas (1923–1977): Frægasta sópransöngkona 20. aldar

Maria Callas var stundum kölluð La Divina vegna guðdómlegra sönghæfileika sinna. Hún var fædd í New York en foreldrarnir voru grískir innflytjendur og ættarnafnið var reyndar Calogeropoulos en var að amerískum sið stytt í Callas. Maria bjó í New York til 14 ára aldurs en þá fór hún til Aþenu með grískri móður sinni sem aldrei hafði fest yndi í Ameríku. Sagt er að eldri systir Mariu sem þótti falleg hafi verið í uppáhaldi hjá móðurinni en Maria hafi ekki notið sömu náðar: „Ég var ljóti andarunginn, feit, klunnaleg og óvinsæl.“

En röddin var guðdómleg. Eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk söng Maria aðalhlutverkið í óperunni Tosca eftir Puccini og var þá meira en 90 kg. Henni var boðið að syngja Madame Butterfly (Puccini) við Metropolitan-óperuna í New York gegn því að hún grennti sig en hún hafnaði boðinu. En árið 1947 sló hún í gegn í borginni Verona á Ítalíu í hlutverki La Gioconda í samnefndri óperu eftir Ponchielli. Söngsigurinn í Verona varð afdrifaríkur því að hún kynntist þar milljónamæringnum Giovanni Meneghini sem heillaðist og fór að senda henni dýrustu skartgripi og föt. Við þetta sigraðist „ljóti andarunginn“ að nokkru leyti á minnimáttarkenndinni. Hún giftist Giovanni tveimur árum síðar. En hún þjáðist samt – og sagt var að þjáningar hennar hafi komið fram í söng hennar enda setti hún í sönginn allar sínar heitustu tilfinningar.

Maria fór í erfiðan megrunarkúr um miðjan sjötta áratuginn og eftir það rak hver óperusigurinn annan. Ljóti andarunginn var orðinn að svani. En þá fóru einnig sögusagnir af stað um ýmsar sérviskur hennar, t.d. það að hún hefði eitt sinn neitað að syngja af því að hundurinn hennar mátti ekki vera baksviðs á meðan. Og afbrýðisemi út í aðrar söngkonur var einnig mjög umtöluð, ekki síst út í ítölsku sópransöngkonuna Renata Tebaldi.

Stóra ástin í lífi Mariu Callas birtist ekki fyrr en með gríska skipakónginum Aristoteles Onassis. Þótt Onassis væri lítill áhugamaður um óperur heillaðist hann af Mariu og kannski líka af frægð hennar! Eftir óperusigur í London árið 1959 náðist mynd af þeim Onassis og Mariu Callas, og engum duldist hvað var í aðsigi. Hjónaband þeirra stóð til 1968, en þá varð hann ástfanginn af enn frægari konu, Jaqueline Kennedy, ekkju sjálfs Bandaríkjaforseta, og gekk skömmu síðar að eiga hana. Þetta varð Mariu Callas gríðarlegt áfall sem hún náði sér aldrei af.

Onssis lést árið 1975. Tveimur árum síðar lést hún, aðeins 52 ára. Ítalski kaupsýslumaðurinn og fyrrverandi eiginmaður keypti á uppboði eftir lát hennar alla skartgripina sem hann hafði gefið henni; sagt var að það væri síðbúin hefnd hans fyrir það að hún hafði sagt skilið við hann til að giftast skipakónginum.

Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden