Rögnvaldur jarl kemur víða við sögu, ekki síst vegna sona sinna, en einn þeirra var Göngu-Hrólfur sem réði yfir Normandí og var forfaðir Rúðujarla, annar var Torf-Einar jarl í Orkneyjum, forfaðir Orkneyinga, þriðji var Þórir jarl þegjandi; og einn sona Rögnvalds var Hrollaugur sem gerðist landnámsmaður á Íslandi, forfaðir Síðumanna.