Spyrill

Boðið er upp á gagnvirkar fjölvalsspurningar með öllum þeim námsbókum sem tilgreindar eru.  Henta slíkar spurningar vel til að þjálfa og festa í minni almenn og sértæk þekkingaratriði.  (Þá verður boðið upp á sjálfstæðan spurningaleik sem nefnist einfaldlega Spyrillinn og inniheldur fjölda spurninga af ýmsum toga, bæði námstengdum og almennum til að efla almennan fróðleik).