François-Marie Arouet (1694–1778), betur þekktur undir höfundarnafninu Voltaire, var franskur rithöfundur og heimspekingur. Hann er þekktastur fyrir hnyttni sína, heimspekileg skrif og stuðning við mannréttindi, einkum trúfrelsi.