Höfundur
Oscar Wilde

Rafbækur

Útgáfa

2015
Bækur á ensku

Leikritið The Importance of Being Earnest er eitt kunnasta leikrit Wildes og jafnframt eitt frægasta skopádeiluleikrit allra tíma. Það var fyrst sýnt í St. James leikhúsinu í London árið 1895. Er það farsakenndur gleðileikur þar sem Oscar skoðar ýmsar siðvenjur og viðhorf síns tíma s. s. hjónabandið og stéttaskiptingu í nýju ljósi. Stíll Wildes er leiftrandi og orðaleikir hans í leikritinu eru óviðjafnanlegir og eiga sinn þátt í velgengi verksins enn þann dag í dag. Má segja að með þessu leikriti hafi ferill Wildes sem rithöfundar hafist fyrir alvöru en að sama skapi markaði það upphafið á erfiðleikum hans, því skömmu síðar var hann ákærður fyrir samkynhneigð og leiddi það til að hætt var að sýna leikritið eftir 86 sýningar, þrátt fyrir miklar vinsældir.