Höfundur
Jón Trausti (Guðmundur Magnússon)

Útgáfa

2015
Skáldsögur á íslensku
Heiðarbýlið III - Fylgsnið

Fylgsnið er þriðja bókin í ritröðinni um fólkið á Heiðarbýlinu eftir Jón Trausta eða Guðmund Magnússon eins og hann hét með réttu; sú fjórða ef Halla er talin með.  Kom hún út árið 1910.  Með sögunum öðlaðist Guðmundur viðurkenningu sem mesti rithöfundur landsins.  Fram að því höfðu íslenskir rithöfundar ekki mikið lagt sig eftir að skrifa skáldsögur.  Var það helst Jón Thoroddsen, Torfhildur Hólm og Jónas frá Hrafnagili.  En nú var allur byrjendabragur af íslensku skáldsögunni og því má segja að Guðmundur Magnússon hafi brotið blað í íslenskri skáldsagnagerð með útkomu bókarinnar Höllu og næstu bóka.

Valmynd

Tilvitnun

Áratugurinn 1868 til 1878 er að mörgu leyti merkilegur í sögu Íslands. Þá verða meiri breytingar á fám árum en áður höfðu orðið á heilum öldum, og það einmitt breytingar, sem ná til hvers einasta manns í þjóðfélaginu. 1869 fær landið nýja hegningarlöggjöf, að ýmsu leyti mildari og mannúðlegri en þá, sem á undan var. 

Úr sögunni Heiðarbýlið III - Fylgsnið eftir Jón Trausta. 

Hljóðbók
Heiðarbýlið III - Fylgsnið

Lengd : 00:00

Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 00:00