Höfundur
Jón Trausti (Guðmundur Magnússon)

Útgáfa

2015
Skáldsögur á íslensku
Heiðarbýlið IV - Þorradægur

Þorradægur er fjórða bókin í ritröðinni um fólkið á Heiðarbýlinu eftir Jón Trausta eða Guðmund Magnússon eins og hann hét með réttu; sú fimmta ef Halla er talin með.  Rekur hún endahnútinn á söguna um fólkið á heiðinni. Kom hún út árið 1911.  Þegar sagan Halla kom út árið 1906 vissi enginn hver höfundurinn var og áttu kannski síst von á það væri Guðmundur Magnússon.  Hann naut gríðarlegra vinsælda allt þar til hann lést fyrir aldur fram árið 1918 úr spænsku veikinni.  Sögur Jóns Trausta eru sprottnar úr íslenskum raunveruleika og fundu strax samhljóm í hjörtum landsmanna.   Þær eru sannferðugar örlagasögur sem Íslendingar lifðu frá degi til dags.

Valmynd

Tilvitnun

Byssuskot, sem ekki meira tjón en það, að granda lífi einnar geldmjólka belju, getur varla með tíðindum talist. En fyrir Heiðarhvamm var þetta byssuskot mikil tíðindi. Það endurómaði frá fjöllunum og buldi á bænum eins og þungt högg, því að það blés á ljós hinna síðustu vona um það, að þar væri hægt að halda áfram búskap lengur en til vorsins. 

Úr sögunni Heiðarbýlið IV - Þorradægur eftir Jón Trausta. 

Hljóðbók
Heiðarbýlið IV - Þorradægur

Lengd : 00:00

Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 00:00