Höfundur
Jón Trausti (Guðmundur Magnússon)

Útgáfa

2015
Skáldsögur á íslensku
Sögur frá Skaftáreldi II: Sigur lífsins

Sigur lífsins nefnist seinni hluti sagnabálksins Sögur frá Skaftáreldi I-II, og heldur áfram þar sem fyrri hlutanum Holt og skál sleppti.  Komu sögurnar fyrst út á árunum 1912-1913 og voru fyrstu sögulegu skáldsögur Jóns Trausta.  Um söguna skrifaði Steingrímur Matthíasson í blaðið Norðurland: ,,Þessi bók Jóns Trausta hafði sömu þægilegu áhrifin á mig eins og allar hans fyrri sögur, að ég las hana með ánægju frá upphafi til endis." Og satt að segja þekki ég ekki neinn ákjósanlegri kost neinnar sögubókar en þann, að efnið sé svo fjölskrúðugt og aðlaðandi, að maður geti flett hverri blaðsíðunni og lesið hvern kaflann á fætur öðrum með stöðugri forvitni og vaxandi fróðleiksfýsn." Þessi orð Steingríms segja allt sem segja þarf því þetta er frábært bókmenntaverk sem því miður hefur farið framhjá alltof mörgum.

Valmynd

Tilvitnun

Mú tek ég þig við hönd mér að nýju, lesari góður, og leiði þig austur að Skaftáreldi. Við leggjum af stað úr Reykjavík. En það er vorið 1784. Því máttu síst af öllu gleyma. Eigum við að litast um í Reykjavík, áður en við leggjum af stað? Æ, skyldi taka því? Reykjavík er ekki burðug. Hún er ekki einu sinni kaupstaður. Kaupstaðarhúsin - kóngsverslunarhúsin - húka skökk og skæld á landsuðurhorninu á Örfirisey. 

Úr sögunni Sigur lífsins eftir Jón Trausta. 

Hljóðbók
Sögur frá Skaftáreldi II: Sigur lífsins

Lengd : 00:00

Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 00:00