Höfundur
Jón Trausti (Guðmundur Magnússon)

Útgáfa

2015
Skáldsögur á íslensku
Sýður á keipum

Sagan Sýður á keipum eftir Jón Trausta eða Guðmund Magnússon eins og hann hét með réttu, kom fyrst út árið 1916 og var þá spyrt saman við söguna Krossinn helgi í Kaldaðarnesi. Eins og með flestar sögur Jóns Trausta var sögunni tekið vel af almenningi, en dómar um hana voru nokkuð misjafnir, allt frá því að vera með því besta sem hann hafði látið frá sér fara, til þess versta. Sýnir það hve oft er erfitt að henda reiður á dómum gagnrýnenda. Sagan gerist á verstöðinni við Dritvík á Snæfellsnesi og gefur okkur skemmtilega innsýn í lífið á slíkum stöðum, en það var löngum einn helsti styrkur höfundar að draga upp myndir af lokuðum heimum, lokuðum samfélögum, jafnhliða því að segja góða sögu. Nægir að nefna sögurnar af Höllu og heiðarbýlinu því til staðfestingar.

Valmynd

Tilvitnun

,,Yfir hraun og hrjóstur" - yfir bert og blasið landið gnæfir Snæfellsjökull, hið mikla og útbrunna eldfjall, með gíginn í miðju fjallinu, fullan af jökli. Þar stendur þessi mikli og fagri fjallajöfur sem risavaxið minnismerki löngu-löngu liðinna stórviðburða í ríki hljóðrar og þunglyndislegrar náttúrunnar. 

Úr sögunni Sýður á keipum eftir J'on Trausta. 

Hljóðbók
Sýður á keipum

Lengd : 00:00

Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 00:00