Höfundur
Þorgils gjallandi (Jón Stefánsson)

Útgáfa

2015
Skáldsögur á íslensku
Upp við fossa

Sagan Upp við fossa eftir Þorgils gjallandi kom út árið 1902 og voru þá tíu ár liðin frá því að fyrsta bók hans, Ofan úr sveitum, kom út. Í henni má merkja áhrif frá norrænum raunsæisrithöfundum og natúralistum og Þorgils ræðst af offorsi gegn lífslyginni í samfélaginu og ríkjandi gildum. Þá er hann berorðari en áður og gerir sér allt far um að hneyksla, bæði með hispurslausum lýsingum og skoðunum. Viðtökurnar voru eins og við mátti búast, og þeir voru fáir sem reyndu eitthvað að verja höfundinn. Það segir þó sitt að sagan lifir enn ágætu lífi nú rúmlega hundrað árum frá því hún kom fyrst út og hefur lifað margar sögur er hlutu betri dóma. Álitamálin og afstaðan sem sagan fól í sér á sínum tíma lyfta engum brúnum í dag og helst að menn hafi gaman af að rýna í þetta forpokaða samfélag sem sagan var skrifuð inn í. Þrátt fyrir viðtökurnar á Upp við fossa hélt Þorgils áfram að skrifa, en sögur hans eftir þetta voru mildari og ádeiluhitinn virðist hafa kulnað lítið eitt. Kannski var það bara að Þorgils varð sáttari við eigið samfélag með árunum.

Valmynd

Tilvitnun

Brandur á Efra-Fossi hafði tekið jörðina að erfð, vel húsaðan bæ og margt gangandi fé; svo heimurinn virtist láta honum í besta lagi; og margur jafnaldri hans leit löngum öfundaraugum til erfðafjárins.

En svo undarlegar, og nærri að segja vitlausar, voru ungu stúlkurnar í dalnum, að þær gátu ekki metið auðinn og gengið að eiga hann Brand á Fossi, að minnsta kosti ekki þær, sem hann bað um.

Satt að segja vildi Brandur heldur fá sér konu af betri endanum, eins og eðlilegt var. En þær af betri endanum lágu nú ekki alveg lausar fyrir honum.

Allt í einu var hann þó svo heppinn, að ná í hamingjuhjólið og höndla hnossið...

Úr bókinni Upp við fossa eftir Þorgils gjallandi. 

Hljóðbók
Upp við fossa

Lengd : 00:00

Sækja fyrir almennar tölvur

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir almennar tölvur.

Sækja fyrir spjaldtölvur og snjallsíma

Smelltu hér til að sækja hljóðbókina fyrir iTunes eða önnur sæmbærileg öpp fyrir spjaldtölvur og snjallsíma.

Lengd : 00:00