Hér getið þið nálgast ýmiss konar stuðningsefni með námsbókinni Fields og Vision 2 sem víða er kennd. Við höfum sett grunntextana upp með upphleyptum orðskýringum til að auðvelda nemendum að tileinka sér efnið og þá fylgja hverjum texta annars vegar gagnvirkar efnisspurningar og hins vegar gagnvirkar orðaforðaspurningar. Efnisliðnum Writer´s Gallery fylgja einungis gagnvirkar efnisspurningar.
Rétt er að geta þess að eftir því sem líður á bókina koma textar sem eru enn í höfundarrétti og getum við ekki birt þá texta en munum eftir sem áður bjóða upp á þjálfunarspurningar úr þeim.