Ábendingarfornöfnin er auðvelt að læra enda eru þau bara þrjú, sá, þessi og hinn. Þau beygjast öll í falli, kyni og tölu (hugsum okkur að við séum að benda á einhvern/eitthvað).
Þessi æfing var erfið en hin sem ég glímdi við áðan var frekar létt. Þessi kona er sú sem hjálpaði mér áðan. Ég fer ekki að kaupa bíl af þessum manni, enda líst mér miklu betur á hinn sölumanninn.
Svona beygist sá:
Eintala
|
|
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
sá |
sú |
það |
|
þolfall |
þann |
þá |
það |
|
þágufall |
þeim |
þeirri |
því |
|
eignarfall |
þess |
þeirrar |
þess |
Fleirtala
|
|
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
þeir |
þær |
þau |
|
þolfall |
þá |
þær |
þau |
|
þágufall |
þeim |
þeim |
þeim |
|
eignarfall |
þeirra |
þeirra |
þeirra |
Við sjáum hér að fleirtala ábendingarfornafnanna (sá, sú, það) er alveg eins og fleirtala persónufornafnanna (hann, hún, það). Auk þess samsvarar hvorugkyn eintölu af ábendingarfornafninu sá persónufornafninu það: Það (ábfn.) barn sem þetta gerir mun ekki komast upp með það (pfn.) til lengdar.
Svona beygist þessi:
Eintala
|
|
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
þessi |
þessi |
þetta |
|
þolfall |
þennan |
þessa |
þetta |
|
þágufall |
þessum |
þessari |
þessu |
|
eignarfall |
þessa |
þessarar |
þessa |
Fleirtala
|
|
KARLKYN |
KVENKYN |
HVORUGKYN |
|
nefnifall |
þessir |
þessar |
þessi |
|
þolfall |
þessa |
þessar |
þessi |
|
þágufall |
þessum |
þessum |
þessum |
|
eignarfall |
þessara |
þessara |
þessara |
Verkefni
Finndu ábendingarfornöfnin.
Er þetta sá sem kom síðast? Nei, þetta er hinn eigandinn. Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum. Mér verður stundum hugsað til þessara kvenna þegar ég sé hinar vera að reyna þetta. Hann saurgaði hin helgu vé. Hvað er þetta barn að gera hér?
Hættu þessu strax! Við verðum að hjálpa þessum náungum. Hinir voru ágætir en þessir virðast ekki geta þetta. Hvað er þetta? Er þetta hin konan hans? Hin ljóshærða kona skildi við manninn sinn. Þetta barn kom hingað ásamt öðru, en hitt fór snemma. Hvar er sú sem kom í gær með fræið og fór að sá?
Í verkefninu hér að ofan þarf m.a. að gæta að orðinu hin á tveimur stöðum þar sem það er laus greinir (hin helgu vé/hin ljóshærða kona) en ekki ábendingarfornafn!
Aukaverkefni
Myndaðu málsgrein þar sem orðmyndin sá kemur fyrir í fjórum mismunandi merkingum og þremur mismunandi orðflokkum!
Svar:
Sá (ábfn.) maður sem sá (so.) þetta var að sá (so.) korni og hélt á sá (no [nf.: sár: kerald]).