Þáskildagatíð svipar til þáframtíðar að því leyti að til þess að mynda hana eru sömu hjálparsagnir notaðar, munu og hafa, en munu er alltaf í viðtengingarhætti þátíðar:
Jói mun hafa étið gulrætur (þáframtíð)
Jói mundi hafa étið gulrætur (þáskildagatíð)
Í þáskildagatíð er greinilega miðað við að tiltekin skilyrði hefðu þurft að vera uppfyllt (í fortíð) til þess að þetta eða hitt hefði getað gerst.