Nafnorð kallast þau orð sem eru heiti á verum (fólki, dýrum o.s.frv.), plöntum og jurtum, hlutum (bolli, rjómi, o.s.frv.), hugtökum og hugmyndum (ást, stefna o.s.frv.), verknuðum (bakstur, hjólreiðar, veiði o.s.frv.) og öðru er hefur á sér heiti.
Nafnorð skiptast í sérnöfn og samnöfn. Sérnöfn eru sérheiti yfir einstakling eða hlut (Ingólfur, Þóra, Akureyri, Esja o.s.frv.). Samnöfn eru aftur á móti sameiginleg heiti á ýmsu (maður, stúlka, bær, fjall o.s.frv.).
Helstu einkenni nafnorða er að þau bæta við sig greini (hestur-inn), þau flokkast eftir kynjum, þau fallbeygjast, þau standa í ákveðinni tölu.
Verkefni:
- Í hvaða tvo flokka skiptast nafnorð?
- Líttu á orðin angan og himinn. Hvernig væru þau með greini?