Örlygur hét maður á Suðureyjum (Hebrides Islands) við Skotland; hann var norskur að uppruna. Hann langaði að freista gæfunnar og flytjast til Íslands sem þá var enn óbyggt að miklu leyti. Örlygur hafði tekið kristna trú á Suðureyjum og var þar í vinfengi við Patrek biskup. Patrekur gaf honum góð ráð við brottförina og sagði honum hvar hann skyldi taka sér bólfestu á Íslandi; hann lýsti landslaginu og sagði honum að setjast að undir syðsta fjallinu af þremur sem blasa myndu við honum en firðir skærust inn á milli fjallanna. Auk þessa gaf Patrekur Örlygi kirkjuvið, járnklukku, plenarium (helgirit), vígða mold og gullpening. Hann sagði að Örlygur mundi finna þrjá steina upp reista í rjóðri einu og þar skyldi hann byggja kirkju.
Þeir létu í haf á tveimur skipum og stjórnaði Kollur fóstbróðir Örlygs hinu skipinu. Þegar þeir nálguðust land lentu þeir í hrakningum og þá rak í átt að Vestfjörðum. Þeir komust með naumindum í land í firði einum eftir að hafa heitið á Patrek biskup. Í þakklætisskyni nefndu þeir fjörðinn Patreksfjörð. Þeir höfðu vetursetu í Örlygshöfn. Kollur, fóstbróðir Örlygs trúði á Þór og hét á hann. Ekki tókst betur til en svo að skip hans brotnaði við lendingu en menn björguðust. Þetta þótti vera til marks um það að betra væri að trúa á Krist en Þór og önnur heiðin goð. Kollur og hans menn höfðu vetursetu í Kollsvík.
Um vorið fór Örlygur suður á Faxaflóa að leita að þeim stað sem Patrekur hafði vísað á og fann hann þegar hann nálgaðist Kjalarnes. Þá vildi svo til að járnklukkan féll útbyrðis. En þegar þeir komu í land hafði klukkuna þegar rekið að landi og lá nú í þaranum; hér hafði greinilega orðið kraftaverk. Nú reisti Örlygur bú á þessum stað og kallaði bæ sinn Esjuberg. Hann reisti einnig kirkju í rjóðrinu þar sem steinarnir stóðu og kom járnklukku Patreks þar fyrir. Kirkjan á Esjubergi hefur að öllum líkindum verið fyrsta kirkja sem byggð var á Íslandi.
Á næsta bæ við Esjuberg hafði náfrændi Örlygs numið land. Hann hét Helgi bjóla; hann var bróðir Auðar djúpúðgu í Hvammi í Hvammsfirði en tengdasonur Ingólfs Arnarsonar í Reykjavík.
Einn af afkomendum Örlygs var Hörður Grímkelsson sem eignaðist jarlsdótturina Helgu á Gautlandi. Framan af ævi þeirra lék lánið við þau, en að því kom að Hörður var dæmdur útlægur fyrir víg sem hann framdi og fyrir að hafa brennt inni saklaust fólk á Auðsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði. Eftir það hélst Hörður við í Geirshólmi á Hvalfirði. Hörður var drepinn þremur árum seinna, en Helga kona hans synti þá með syni þeirra tvo úr Geirshólmi og bjargaði þannig lífi þeirra.
| Fjöldi spurninga: | 8 |
| Fjöldi tilrauna leyfðar: | Otakmarkad |
| Opið: | Alltaf |
| Til að ná prófinu: | 50 % |
| Má fara tillbaka: | Forbidden |