4. Jungfrú Ingunn á Hólum: fyrsta lærða konan á Íslandi

Í Grafarholti í Reykjavík er skóli sem heitir Ingunnarskóli. Margir hafa velt fyrir sér hvernig á þessu heiti standi. Svarið er: Skólinn er nefndur eftir Ingunni Arnórsdóttur sem minnst er á í sögu frá byrjun 13. aldar um líf Jóns biskups Ögmundssonar á Hólum í Hjaltadal. Sennilega má slá því föstu að Ingunn sé fyrsta lærða konan á Íslandi. Lítum nánar á málið.

Jón Ögmundsson varð biskup árið 1106 og gegndi því embætti til dauðadags 1121. Í sögu hans, sem skrifuð var um 80 árum eftir andlát hans kemur fram að hann hafi stofnað skóla á Hólum.

Sjálfur lærði Jón í Skálholtsskóla hjá fyrsta íslenska biskupinum yfir Íslandi, Ísleifi Gissurarsyni (hann var biskup frá 1056–1080). Að Ísleifi látnum tók Gissur, sonur Ísleifs, við biskupsembættinu og gegndi því til dauðadags 1118. Á biskupstíð Gissurar vildu Norðlendingar fá eigin biskupsstól og þá var Jón Ögmundsson valinn biskup þeirra (1106). Jón biskup stofnaði fljótlega skóla á biskupssetri sínu, Hólum í Hjaltadal í Skagafirði, og fékk til sín góða kennara. Einn þeirra hét Gísli; hann var frá Gautlandi (nú í Svíþjóð) og þótti afar mælskur og kenndi m.a. latínu. Annar hét Rikini og var franskur. Hann kenndi sönglist og versagerð og þótti vera afar hæfileikaríkur. Í sögu Jóns biskups segir að höfðingjar hafi sent börn sín til að nema af þessum mönnum. Það vekur athygli að stúlkur hafa verið í nemendahópnum því langalgengast hefur verið að einungis drengir væru sendir til bóknáms.

Ingunn hefur að öllum líkindum verið einn þessara nemenda. Hún hefur verið framúrskarandi hæfileikarík því að í eftirfarandi texta kemur fram, að hún hafi verið fengin til að kenna prestsefnum og leiðrétt latínuverkefni sem þeir lásu upp fyrir hana meðan hún sat við sauma. Í sögunni er þetta orðað svona (meira en 800 ára gamall texti!):

Þar var og [þ.e. einnig] í fræðinámi sannferðug [þ.e. trúverðug/ traust] jungfrú er Ingunn hét. Engum þessum [þ.e. engum af hinum kennurunum] var hún lægri í sögðum bóklistum, kenndi hún mörgum grammaticam [þ.e. málfræði og latínu] og fræddi hvern er nema vildi; urðu því margir vel menntir undir hennar hendi. Hún rétti [þ.e. leiðrétti] mjög latínubækur, svo að hún lét lesa fyrir sér, en hún sjálf saumaði, tefldi eða vann aðrar hannyrðir með heilagra manna sögum, kynnandi mönnum guðs dýrð, eigi aðeins með orðum munnnáms, heldur og með verkum handanna.“

Þessi texti segir okkur að Ingunn hafi annars vegar kennt prestsefnum latínu og leiðrétt stíla þeirra en jafnframt hafi hún verið mikil hannyrðakona. Talið er að hún hafi saumað út altarisklæði um heilaga Maríu og um ævi heilags Marteins.

Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden