8. Edison: „Snilligáfa er eitt prósent andagift og 99 prósent sviti“

Bandaríkjamaðurinn Thomas Alva Edison (1847–1931) er einhver mesti uppfinningamaður allra tíma. Til marks um afköst hans má nefna að hann fékk einkaleyfi á um 1300 uppfinningum. Þekktastur er hann fyrir að finna upp hljóðnemann og hljóðritann (1877) og ljósaperuna (1879). Einnig má nefna að hann kom upp fyrstu rafveitu í heimi (í New York 1882) og átti mikinn þátt í þróun hreyfimynda (kvikmynda). Einnig endurbætti hann síma uppfinningamannsins A.G. Bell. Árið 1883 uppgötvaði Edison að glóandi málmþráður sendir frá sér rafeindir og var það upphafið að þróun rafeindalampans.

Edison var sjöunda og yngsta barn foreldra sinna en þrjú systkinanna dóu í bernsku. Edison heyrði mjög illa og talið er að það megi rekja til eyrnabólgu í frumbernsku. Heyrnarleysið hafði mikil áhrif á líf hans og stuðlaði meðal annars að ýmsum uppfinningum hans. Skólanám hentaði honum ekki því að í skólanum gekk allt út á utanbókarlærdóm. Og þótt hann reyndi að spyrja spurninga þá gerði hin slæma heyrn það að verkum að erfiðlega gekk að halda uppi rökræðum við hann. Skólagangan var því afar stutt eins og hún var reyndar hjá flestum þá.

Tólf ára gamall fór Edison að vinna sem lærlingur á járnbrautinni milli Detroit og Port Huron. Fjórum árum áður hafði ritsíminn verið tekinn í gagnið hjá járnbrautarfélaginu til þess að segja til um staðsetninar og hreyfingu lestanna. Þetta var svokallað mors, þ.e. merkjakerfi eða stafróf, sett saman úr röð af punktum og strikum. Edison lærði ritsímatækni og lauk prófi árið 1863. Þá geisaði þrælastríðið í Bandaríkjunum, en ritsímatæknin var mjög mikið nýtt í þágu stríðsrekstursins.

Vegna þess að mors-kerfi var að nokkru leyti hljóðkerfi sem Edison átti erfitt með að fylgjast með vegna skertrar heyrnar, þá þróaði hann kerfið þannig að unnt var að breyta rafstraumsmerkjum og prenta þau út sem stafi. Þá var Edison 22 ára.

Eftirfarandi athugasemdir eru hafðar eftir þessum merka vísindamanni:

Þótt þú náir ekki því sem þú ætlaðir þér upphaflega, merkir það ekki að vinna þín hafi verið gagnslaus.“

Okkar mesti veikleiki liggur í því að gefast upp. Öruggasta leiðin til að ná árangri er alltaf sú að reyna einu sinni enn.“

Mér hefur ekki mistekist. En ég hef fundið 10.000 leiðir sem ganga ekki.“

Þrjú grundvallaratriði þurfa að vera fyrir hendi til að ná árangri: mikil vina, haltu-þig-við-efni og heilbrigð skynsemi.“

Fjöldi spurninga:10
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden