Stundum er það þannig að börn verða fræg út á frægð foreldra sinna. Þetta á við um bandarísku söngkonuna Natalie Cole sem lést í Los Angeles á gamlársdag 2015. Hún var dóttir hins heimsfræga þeldökka söngvara, Nat „King“ Cole. Móðirin var einnig þekkt söngkona. Natalie var sex ára þegar hún söng inn á jólaplötu með föður sínum, og 11 ára byrjaði hún sinn raunverulega söngferil.
Natalie sagði það um fjölskyldu sína að hún væri svarta hliðstæðan við hina hvítu og frægu Kennedy-fjölskyldu: nógir penignar og glæsileiki en ekki alltaf mikil hamingja. Natalie naut góðrar menntunar og lauk háskólaprófi í barnasálfræði.
En Natalie Cole átti snemma við heilsufarsvanda að stríða. Hún þjáðist m.a. af lifrarbólgu C sem var afleiðing sýkingar frá sprautu með fíkniefnum, en allt frá háskólaárunum hafði hún barist við eiturlyfjafíkn og jafnvel neytt sterkra efna eins og heróíns. Hún fór í meðferð og tókst að losna úr klóm eiturlyfjanna árið 1983.
Í sjálfsævisögu sinni sem kom út árið 2000 sagði Natalie frá því hvernig hún hefði barist við þunglyndi; fyrst eftir að faðir hennar lést árið 1965, og síðar, eftir að einkasonur hennar var nær drukknaður í sundlaug fjölskyldunnar af því að hún (þ.e. Natalie) var í annarlegu ástandi og fylgdist ekki með honum. Um sama leyti átti hún í útistöðum við móður sína.
Nýrun gáfu sig í kjölfar lifrarbólgunnar. Eftir langa og þjáningarfulla bið eftir nýrnaskiptum sendi Natalie út neyðarkall í frægum sjónvarpsþætti árið 2009 og fékk þá nýra frá fjölskyldu líffæragjafa sem hafði sagt að ef nýra hans mundi henta Natalie ætti hún að fá það.
Ferill Natlaie var kaflaskiptur. Um miðjan sjöunda áratuginn sló hún í gegn með lögum á borð við This Will Be, Inseparable og Our Love. En þá tók við erfitt tímabil sem einkenndist af eiturlyfjaneyslu eftir föðumissinn og ósamkomulagi við móðurina. Árið 1987 nær Natalie sér svo á strik á ný með plötunni Everlasting. Og árið 1991 gaf út plötuna „Unforgettable...With Love“. Þar syngur hún dúetta með föður sínum með því að nýta gamlar upptökur hans og syngja sig inn í þær! Platan naut gríðarlegra vinsælda og seldist í sjö milljónum eintaka í Bandaríkjunum. Alls seldust plötur Natalie í 30 milljónum eintaka.
Einkalíf Natalie var ekki neinn dans á rósum. Hún var þrígift og öll hjónaböndin enduðu með skilnaði. Í fjögur ár var hún gift framleiðandaum Marvin Yancy og eignaðist með honum sitt eina barn, soninn Robert Adam, árið 1977. Marvin Yancy var heittrúaður baptisi og Natalie gekk á vit trúarinnar með honum þann tíma sem þau voru saman; hann átti mikinn þátt í að koma henni á rétta braut. Sonurinn Robert Adam er tónlistarmaður og var með móður sinni á tónleikaferðum. Mið-eiginmaðurinn var trommuleikarinn Andre Fischer. Síðast giftist Natlie biskupnum Kenneth Dupree en hjónaband þeirra fór út um þúfur árið 2004.
| Fjöldi spurninga: | 8 |
| Fjöldi tilrauna leyfðar: | Otakmarkad |
| Opið: | Alltaf |
| Til að ná prófinu: | 50 % |
| Má fara tillbaka: | Forbidden |