19. Dalai Lama

Þegar við heyrum eða sjáum nafnið Dalai Lama kemur okkur líklega fyrst í hug krúnurakaður búddhamunkur í rauðri skikkju. Þessi maður býr í Indlandi en hefur ferðast víða um heim í meira en hálfa öld og boðað mannkærleika. Hann hefur vakið athygli á stöðu landa sinna í Tíbet, landi sem Kínverjar hernámu árið 1951. Hann er andlegur leiðtogi Tíbetbúa og var einnig til skamms tíma pólitískur leiðtogi útlagastjórnar Tíbet. Einkunnarorð hans eru „barátta án ofbeldis“.

Maðurinn sem hér er rætt um er hinn fjórtándi Dalai Lama. Hann fæddist í Tíbet árið 1935 og var eitt af 17 börnum móður sinnar. Þremur árum áður hafði hinn 13. Dalai Lama látist. Búddhatrúarmenn halda því fram að Dalai Lama endurholdgist aftur og aftur. Eftir að sá 13. lést var farið að leita að hinum nýja og sá fannst þegar hann var tveggja ára. Búddhamunkur kom að húsi fjölskyldu hans í venjulegum klæðum; móðirin kom til dyra með drenginn á handleggnum. Litli snáðinn greip strax í bænakeðju sem munkurinn var með um hálsinn og sagðist eiga hana. Í ljós kom að hinn 13. Dalai Lama hafði átt þessa keðju.

Fjögurra ára gamall var hinn endurholdgaði Dalai Lama fluttur til Potala, klausturhallarinnar miklu í borginni Lhasa sem var aðsetur Dalai Lama allt til ársins 1959. Litli maðurinn fékk nú ekki lengur að leika sér við önnur börn, heldur var hann settur til mennta hjá sprenglærðum búddhamunkum. Hann gat aðeins leyft sér að horfa á leik hinna barnanna út um glugga.

Dalai Lama var aðeins 16 ára þegar Kínverjar réðust inn í Tíbet árið 1951. Hann þurfti þá að stjórna pólitískri baráttu landa sinna gegn kínversku ofurvaldi, allt þar til hann flúði landið átta árum síðar ásamt um 100.000 löndum sínum eftir árangurslausar samningaumleitanir við stórveldið Kína. Allar götur síðan hefur hann verið leiðtogi, kennari og vonarneisti samlanda sinna og viðhaldið og ræktað þá menningu sem þróast hafði í hinu einangraða Tíbet um aldir.

Þrátt fyrir öll þau störf sem Dalai Lama þarf að sinna sem útlægur leiðtogi þjóðar sinnar lifir hann eins og munkur. Hann vaknar kl. 3 á hverri nóttu og stundar hugleiðslu fimm klukkustundir á sólarhring. Sérhvern dag styrkir hann kærleiksheit sín og loforð um að endurholdgast aftur og aftur meðan þess sé þörf. Hann lýkur hverjum degi með þessari heitstrengingu: „Svo lengi sem veröldin varir og svo lengi sem verur finnast, megi ég vera á meðal þeirra til að eyða þjáningu heimsins.“ Þess má geta að orðið lama merkir kennari.

Dalai Lama elur ekki með sér reiði eða hatur til Kínverja, heldur þvert á móti kærleika og góðvild. Hann bendir á að venjulegur Kínverji óski sér einskis nema hamingju og friðar. Dalai Lama fékk friðarverðlaun Nobels árið 1989.

Dalai Lama stundar sálarrannsóknir á fólki sem er á mörkum lífs og dauða. Þá á garðrækt hug hans, hann safnar fágætum jurtum, ræktar garðinn sinn!

Fjöldi spurninga:8
Fjöldi tilrauna leyfðar:Otakmarkad
Opið:Alltaf
Til að ná prófinu:50 %
Má fara tillbaka:Forbidden