Yngsti sonur Haraldar hárfagra. Varð konungur í kringum 935 er hann hrakti Eirík hálfbróður sinn blóðöx frá völdum. Féll í orrustu við syni Eiríks árið 960. Nafnið Aðalsteinsfóstri er tilkomið vegna þess að hann var fóstraður af Aðalsteini Englandskonungi. Segir frá því í Heimskringlu.