Hrólfur kraki var Danakonungur á forsögulegum tíma; til er af honum fornaldarsagan Hrólfs saga kraka. Miðfjarðar-Skeggi náði sverðinu Sköfnungi úr haugi hans. Ef taka má mark á Guðmundar sögu dýra hefur Sköfnungur komið aftur til Íslands því að Gissur Þorvaldsson var með það árið 1253 í Flugumýrarbrennu.