eftir að faðir Knúts, Sveinn tjúguskegg, féll frá árið 1014 var Knútur valinn konungur á Englandi af víkingum sem þar höfðu náð fótfestu, en náði þó ekki völdum fyrr en hann sigraði Játmund járnsíðu árið 1016. Hann var konungur Danmerkur frá 1018 og Noregs frá 1028. Knútur lést 1035.