Sveinn tjúguskegg var konungur í Danmörku frá því u.þ.b. 985 og Suður-Noregs frá því árið 1000. Hann herjaði á England frá 980 og náði þar fótfestu og þvingaði m.a. Aðalráð ráðlausa til að greiða sér svokölluð Danagjöld. Vann hann landið undir sig árið 1013 en lést ári síðar.